City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   sun 14. október 2018 14:00
Arnar Helgi Magnússon
Nuno stjóri mánaðarins - 10 stig af 12 mögulegum
Nuno Espirito Santo, þjálfari Wolves hefur verið útnefndur þjálfari september mánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Lið Wolves hefur farið vel af stað í deildinni en liðið tapaði ekki leik í september.

Wolves sigraði West Ham, Burnley og Southampton ásamt því að ná í frábært útivallarstig gegn Manchester United.

Nuno hefur stillt upp sama byrjunarliði í fyrstu átta leikjum tímabilsins en það hefur ekki gerst áður í sögu ensku úrvalsdeildinni.

„Þetta er viðurkenning fyrir alla sem koma að klúbbnum. Þjálfurum, stuðningsmönnum og leikmönnum. Þetta eru ekki einstaklingsverðlaun. Ég tileinka öllum sem koma að klúbbnum þessum verðlaunum," sagði Nuno þegar hann tók við verðlaununum.

Wolves tekur á móti Watford í næstu umferð deildarinnar en liðið situr í 7. sæti deildarinnar með 15 stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner