Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 03. nóvember 2018 18:07
Ívan Guðjón Baldursson
Marco Silva: Bara eitt lið á vellinum
Mynd: Getty Images
Everton vann sannfærandi sigur á Brighton í dag þar sem Richarlison skoraði tvennu.

Marco Silva var mjög ánægður með sína menn og voru leikmenn Brighton allir á sama máli í viðtölum að leikslokum, að þetta Everton lið gæti barist um sjötta sæti úrvalsdeildarinnar.

„Þetta var besta frammistaða okkar á heimavelli á tímabilinu. Það eina sem mér líkaði ekki við var varnarleikurinn í hornspyrnunni sem þeir skoruðu úr," sagði Silva.

„Við vorum góðir í fyrri hálfleik en það var bara eitt lið á vellinum eftir leikhlé. Richarlison er stórkostlegur knattspyrnumaður og gerði vel að skora tvennu, hann hefði ekki skorað þessi mörk án aðstoðar frá samherjum sínum.

„Það er mikilvægt fyrir okkur að gera betur en á síðasta tímabili. Við viljum að stuðningsmennirnir njóti sín."

Athugasemdir
banner
banner