Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 06. nóvember 2018 08:00
Elvar Geir Magnússon
Gerir AC Milan tilboð í Bailly?
Eric Bailly.
Eric Bailly.
Mynd: Getty Images
AC Milan íhugar að gera janúartilboð í Eric Bailly, varnarmann Manchester United, samkvæmt fréttum frá Ítalíu.

Mattia Caldara er á meiðslalista Milan og mögulegt að hann snúi ekki til baka fyrr en í febrúar.

Milan vill fá miðvörð í janúar og hefur verið orðað við Rodrigo Caio og Thiago Silva.

Jose Mourinho hefur gagnrýnt Bailly á þessu tímabili og viðræður um nýjan samning við Fílabeinsstrendinginn eru ekki komnar af stað.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner