Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 18. nóvember 2018 22:11
Ívan Guðjón Baldursson
Vináttulandsleikur: Mendez með sigurmark í fyrsta leik
Mynd: Getty Images
Spánn 1 - 0 Bosnía Hersegóvína
1-0 Brais Mendez ('78)

Spánn fékk sterkt lið Bosníu og Hersegóvínu í heimsókn í vináttulandsleik fyrr í kvöld.

Bosnía er með hörku lið og vann riðil sinn í B-deild Þjóðadeildarinnar, sem veitir þátttökurétt í A-deildina.

Fyrri hálfleikurinn var bragðdaufur en heimamenn tóku alla stjórn á leiknum eftir leikhlé og verðskulduðu sigurinn að lokum.

Brais Mendez kom inn af bekknum gerði eina mark leiksins á 78. mínútu þegar hann fylgdi eftir skoti frá Isco. Mendez er 21 árs miðjumaður Celta Vigo og var þetta hans fyrsti A-landsleikur.

Leiknum lauk því með 1-0 sigri Spánverja þrátt fyrir að Luis Enrique hafi prófað marga leikmenn.
Athugasemdir
banner
banner