Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 07. desember 2018 18:00
Magnús Már Einarsson
Howe: Við búumst við sterkasta liði Liverpool
Eddie Howe.
Eddie Howe.
Mynd: Getty Images
Eddie Howe, stjóri Bournemouth, reiknar með að Liverpool muni stilla upp sínu sterkasta liði í leik liðanna á morgun þrátt fyrir að framundan sé stórleikur gegn Napoli í Meistaradeildinni á þriðjudag.

Liverpool verður að vinna Napoli til að komast áfram í Meistaradeildinni en fyrst leikur liðið gegn Bournemouth í hádeginu á morgun.

„Ef þú horfir á hvernig þeir nálguðust leikinn gegn Burnley, já þeir gerðu breytingar, en þeir voru mjög fagmannlegir í sínu starfi," sagði Howe.

„Ég held að þeir líti á leikinn gegn okkur sem mjög mikilvægan leik á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni."

„Þeir taka ekki létt á okkur. Við búumst við sterkasta liði Liverpool."


Sjá einnig:
Lovren ekki með - Mane ólíklegur
Athugasemdir
banner
banner