Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 18. desember 2018 11:35
Magnús Már Einarsson
Mirror: Blanc gæti tekið við út tímabilið
Laurent Blanc.
Laurent Blanc.
Mynd: Getty Images
The Mirror segir að Laurent Blanc, fyrrum varnarmaður Manchester United, komi sterklega til greina sem stjóri út tímabilið.

Jose Mourinho var rekinn í morgun og Manchester United ætlar að ráða tímabundið nýjan stjóra út tímabilið. Annar stjóri tekur síðan við stjórnartaumunum næsta sumar.

Blanc lauk ferli sínum sem leikmaður hjá Manchester United á árunum 2001 til 2003. Blanc hefur á ferlinum þjálfað Bordeaux, franska landsliðið og PSG en hann er án starfs í augnablikinu.

Ole Gunnar Solskjær, þjálfari Molde og fyrrum framherji Manchester United, hefur einnig verið nefndur til sögunnar sem mögulegur stjóri út tímabilið.

Næsta sumar þykir líklegt að Manchester United reyni við Mauricio Pochettino stjóra Tottenham.
Athugasemdir
banner