Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 01. janúar 2019 23:30
Arnar Helgi Magnússon
Emery: Stærsta verkefnið að bæta varnarleikinn
Mynd: Getty Images
Unai Emery, stjóri Arsenal var nokkuð sáttur með spilamennsku sinna manna gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Leiknum lauk með 4-1 sigri Arsenal en liðinu hefur gengið mun betur með það að skora mörk en að koma í veg fyrir mörk.

„Okkar stærsta verkefni er að bæta varnarleikinn. Ástæðan fyrir því að við erum að leka inn mörkum er margþætt. Við höfum verið að glíma við meiðsli og þetta var í fyrsta skipti í dag sem að við getum spilað Kosicielny, Mustafi og Sokratis saman."

„Við þurfum að vera klókari í varnarleiknum og finna meira jafnvægi."

„Ég er gífurlega sáttur við sóknarmennina okkar. Við erum að skora helling af mörkum, einungis City og Liverpool hafa skorað fleiri."

Arsenal á leik gegn Blackpool í FA bikarkeppninni á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner