Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 19. janúar 2019 17:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi jafnaði Eið Smára - Sjáðu mark hans í dag
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson var á skotskónum þegar Everton tapaði fyrir Southampton í ensku úrvalsdeildinni.

Gylfi hefur verið einn af ljósu punktunum í leik Everton á þessu tímabili.

Hann minnkaði muninn í 2-1 þegar lítið var eftir af leiknum. Smelltu hér til að sjá mark Gylfa í dag.

Þetta var 55. mark Gylfa í ensku úrvalsdeildinni, en auk Everton hefur hann leikið með Swansea og Tottenham í deildinni. Hann er nú markahæsti Íslendingurinn í sögu deildarinnar, ásamt Eiði Smára Guðjohnsen.

Eiður Smári lék með Chelsea, Tottenham, Stoke og Fulham í ensku úrvalsdeildinni á sínum tíma.

Gylfi er 29 ára og á nú líklegast eftir að taka fram úr Eiði.



Athugasemdir
banner
banner