Belgíski sóknarmaðurinn Michy Batshuayi er samningsbundinn Chelsea til sumarsins 2021 en fær ekki nægan spilatíma hjá félaginu og vill því halda á önnur mið.
Batshuayi er 25 ára gamall og vakti mikla athygli á sér á láni hjá Borussia Dortmund fyrir ári síðan. Hann var lánaður til Valencia á upphafi þessa tímabils en hefur gengið herfilega í spænska boltanum og vill félagið losna við hann.
Batshuayi vildi skipta yfir til Mónakó og klára lánssamninginn sinn þar en Chelsea hefur sett þau félagaskipti á bið. Chelsea vill frekar selja sóknarmanninn heldur en að lána hann.
Everton er talið vera í viðræðum við Chelsea um að kaupa Batshuayi fyrir 40 milljónir punda.
Batshuayi er sagður hafa mikinn áhuga á að starfa með Thierry Henry hjá Mónakó eftir að hafa starfað með honum í belgíska landsliðinu.
Athugasemdir