Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 18. febrúar 2019 07:00
Arnar Helgi Magnússon
Wenger: Arsenal mun sakna Ramsey mikið
Mynd: Getty Images
Aaron Ramsey samdi á dögunum við Juventus en hann mun ganga til liðs við félagið í sumar á frjálsri sölu.

Arsene Wenger, fyrrum stjóri Arsenal, segir að þessi félagsskipti séu áhugaverð en að Arsenal muni sakna Ramsey.

„Þetta er mikill missir fyrir Arsenal og liðið mun sakna hans. Ef ég lít á hina hliðina þá er þetta mjög spennandi skref fyrir Ramsey.

„Ramsey er einstakur leikmaður og það eru ekki margir miðjumenn sem að líkjast honum. Hann er frábær á boltanum, sinnir varnarhlutverkinu vel ásamt sóknarleiknum."

„Hann mun verða frábær viðbót fyrir lið Juventus."

Aaron Ramsey spilaði undir stjórn Wenger í tíu ár hjá Arsenal og saman unnu þeir FA-bikarinn þrisvar sinnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner