Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 04. apríl 2019 12:02
Arnar Daði Arnarsson
Raul Jimenez keyptur til Wolves á metfé (Staðfest)
Jimenez verður áfram í herbúðum Wolves.
Jimenez verður áfram í herbúðum Wolves.
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Wolves hefur keypt sóknarmanninn, Raul Jimenez frá Benfica fyrir 30 milljónir punda.

Jimenez hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Wolves og gengur alfarið til félagsins frá Benfica í sumar. Hann hefur leikið með Wolves í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili á láni frá portúgalska félaginu.

Mexíkóinn hefur skorað 13 mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur og farið hamförum með Wolves sem situr í 7. sæti deildarinnar.

Hann verður þar með dýrasti leikmaður Wolves frá upphafi en dýrasti leikmaður Wolves var Adama Traore sem keyptur var á 18 milljónir pund í ágúst mánuði í fyrra frá Middlesboro.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner