Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 22. apríl 2019 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leikmenn PSG léku í sérstökum Notre Dame treyjum í gær
Mynd: Getty Images
Flestir hafa séð eða lesið eitthvað tengt brunanum í Notre Dame síðustu vikuna. Síðasta mánudag logaði mikill eldur í Notre Dame-kirkjunni í París og hrundi stærsti turn kirkjunnar.

Leikmenn PSG spiluðu í gær gegn Monaco og léku í sérstökum Notre Dame treyjum.

Framan á treyjunum er mynd af kirkjunni frægu og aftan á treyjunni stendur í stað nafna leikmanna nafn kirkjunnar, Notre-Dame.

PSG vann leikinn 3-0 og skoraði hinn tvítugi Kylian Mbappe öll mörk leiksins. Mörk Mbappe má sjá hér að neðan.







Athugasemdir
banner
banner
banner
banner