Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 01. maí 2019 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Wan-Bissaka valinn bestur hjá Palace af leikmönnum og stuðningsmönnum
Mynd: Getty Images
Crystal Palace tilkynnti í gær val á besta leikmanni liðsins valið af leikmönnum og svo stuðningsmönnum.

Hægri bakvörðurinn Aaron Wan-Bissaka hreppti bæði verðlaunin.

Wan-Bissaka hefur átt mjög góða leiktíð og er erfiður við að eiga. Góður bæði varnar- og sóknarlega.

Wan-Bissaka er uppalinn hjá Crystal Palace og verður 22 ára í nóvember. Hann á ættir að rekja til Kongóska lýðveldisins.

Hann lék sjö leiki fyrir Palace á síðustu leiktíð. Á þessari leiktíð hefur hann leikið 33 leiki af 36 í deildinni.


Athugasemdir
banner
banner