Leikmenn Derby County voru hressir eftir sigur sinn á Leeds í undanúrslitum umspilsins í Championship-deildinni.
Derby fer á Wembley og mætir þar Aston Villa í úrslitum umspilsins um að komast upp í ensku úrvalsdeildina.
Sjá einnig:
Lampard: Einn af hápunktum mínum í boltanum
Derby fer á Wembley og mætir þar Aston Villa í úrslitum umspilsins um að komast upp í ensku úrvalsdeildina.
Sjá einnig:
Lampard: Einn af hápunktum mínum í boltanum
Leikmenn Derby fögnuðu með því að skjóta á andstæðinga sína í Leeds. Í janúar var það stórt mál þegar komst upp um að Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, lét njósna um æfingu Derby fyrir leik liðanna.
Eftir það komst upp sagðist Bielsa um alla andstæðinga sína um veturinn.
Leeds var í kjölfarið sektað fyrir njósnir.
Hér að neðan má sjá hvernig leikmenn Derby fögnuðu eftir sigurinn á Leeds. Fagnið minnir nokkuð á GIF-fagn Óttars Bjarna Guðmundssonar, leikmanns ÍA, sem hefur verið notað óspart í upphafi Pepsi Max-deildarinnar.
🕵️♂️🕵️♂️🕵️♂️ pic.twitter.com/EkELXkbyrV
— Soccer AM (@SoccerAM) May 15, 2019
Það var laglegt - Óttar Bjarni Guðmundsson kemur ÍA yfir með skallamarki eftir hornspyrnu 21. mínúta. #pepsimaxdeildin pic.twitter.com/ErMjMV3lQM
— ÍA Akranes FC (@ia_akranes) May 11, 2019
Athugasemdir