Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 20. ágúst 2019 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Kevin MacDonald yfirgefur Aston Villa - Ásakaður um einelti
Mynd: Getty Images
Kevin MacDonald hefur hætt störfum hjá Aston Villa eftir að félagið lauk við rannsókn um meint einelti hans í garð ungra leikmanna félagsins.

MacDonald, 58 ára, var yfirmaður þróunarstarfs Aston Villa og hafði starfað fyrir félagið í rúmlega 20 ár. Á síðustu 10 árum hefur hann þrisvar sinnum tekið við aðalliðinu sem bráðabirgðastjóri auk þess að taka við starfi aðstoðarþjálfara írska landsliðsins og stjórastarfinu hjá Swindon Town til skamms tíma.

Aston Villa má ekki veita almenningi upplýsingar um niðurstöður rannsóknarinnar.

Á ferli sínum sem leikmaður vann MacDonald tvo titla með Liverpool. Hann spilaði einnig fyrir Leicester og Coventry.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner