Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 11. desember 2019 09:44
Magnús Már Einarsson
U15 ára landslið Íslands mætir Sviss á Íslandi
Lúðvík Gunnarsson þjálfar U15 ára liðið.
Lúðvík Gunnarsson þjálfar U15 ára liðið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U15 ára landslið Íslands mætir Sviss í tveimur vináttuleikjum í maí 2020 og fara báðir leikirnir fram hér á landi.

Fyrri leikurinn verður leikinn 26. maí og sá síðari 28. maí.

Liðin mættust í þessum aldursflokki árið 2018 og fóru leikirnir þá einnig fram hér á landi. Sviss vann báða leikina í það skiptið, þann fyrri 1-4 og þann síðari 1-3.

Á þessu ári fór U15 ára landslið Íslands til Póllands þar sem það tók þátt í UEFA móti.
Athugasemdir
banner
banner
banner