Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 02. desember 2017 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England í dag - Man Utd í heimsókn hjá Arsenal
Man Utd fer á Emirates.
Man Utd fer á Emirates.
Mynd: Getty Images
Það er veisla í enska boltanum í dag.

Átta leikir verða spilaðir, einn í hádeginu, svo verða sex leikir 15:00 og síðan er stórleikur í eftirrétt.

Í hádeginu fá Englandsmeistarar Chelsea lið Newcastle í heimsókn. Þannig byrjar dagurinn.

Liverpool er búið að vinna þrjá í röð og heimsækir nýliða Brighton, sem þurfa að passa sig á hinum funheita Mohamed Salah. Liverpool mætti Stoke í vikunni og vann 3-0, en Salah skoraði tvö þrátt fyrir að hafa byrjað á varamannabekknum.

Tottenham heimsækir sterkt lið Watford sem tapaði fyrir Manchester United á heimavelli í miðri viku og Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson verða líklega í byrjunarliðum Everton og Burnley eftir að hafa báðir lagt upp mörk í vikunni.

Risaslagur helgarinnar er svo á Emirates. Arsenal tekur þar á móti Manchester United í gífurlega mikilvægum leik. Fjögur stig skilja Man Utd, í öðru sæti, að frá Arsenal, sem er fjórða sæti.

Leikir dagsins:
12:30 Chelsea - Newcastle (Stöð 2 Sport)
15:00 Brighton - Liverpool (Stöð 2 Sport)
15:00 Watford - Tottenham
15:00 Everton - Huddersfield
15:00 Leicester - Burnley
15:00 Stoke - Swansea
15:00 West Brom - Crystal Palace
17:30 Arsenal - Man Utd (Stöð 2 Sport)

Sjá einnig:
Fantasy um helgina - Arsenal gegn Man Utd
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner