Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 03. júlí 2019 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Herrera verður númer 21 hjá PSG
Mynd: Getty Images
Það hefur enn ekki verið staðfest en allt virðist benda til þess að Ander Herrera verði leikmaður PSG á allra næstu dögum.

Félagið lak því óvart út í dag að stuðningsmenn gætu nú pantað treyjur með áletruninni "Herrera 21".

Herrera var með lausan samning hjá Manchester United og hóf viðræður um nýjan samning í vetur. Félagið frestaði viðræðunum of lengi og blandaði PSG sér í baráttuna um Spánverjann.

Undir lok tímabilsins kvaddi hann félagið og stuðningsmenn þess. Herrera lék 132 deildarleiki fyrir United og skoraði í þeim tólf mörk.





Athugasemdir
banner