Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 03. júlí 2019 22:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Inter ætlar að fá Lukaku - Lánssamningur með skuldbindingu
Mynd: Getty Images
Inter Milan ætlar að leggja allt kapp í að tryggja sér Romelu Lukaku í sumar.

Þetta segir umboðsmaður leikmannsins, Federico Pastorello. Inter vill fá Lukaku á láni út komandi leiktíð og skuldbinda sig á sama tíma til þess að kaupa hann á 63 milljónir punda næsta sumar.

Antonio Conte, nýráðinn stjóri Inter, er mikill aðdáandi Lukaku en hann reyndi að fá framherjann til Chelsea árið 2017 en þá valdi hann Manchester United.

Lukaku hefur skorað 42 mörk í 96 leikjum hjá Manchester United. Hann mætti til æfinga hjá félaginu á mánudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner