Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 04. júlí 2019 10:30
Magnús Már Einarsson
Liverpool ætlar ekki að selja Lovren
Mynd: Getty Images
Liverpool ætlar ekki að selja varnarmanninn Dejan Lovren í sumar samkvæmt frétt Sky Sports í dag.

Lovren hefur verið orðaður við AC Milan en ítalska félagið hefur ekki lagt fram tilboð í hann að sögn Sky.

Lovren er þó sagður vera á óskalista AC Milan fyrir sumarið.

Hinn 29 ára gamli Lovren spilaði lítið síðari hlutann á síðasta tímabili en Liverpool vill samt ekki selja hann.

Auk Króatans er Liverpool með miðverðina Virgil van Dijk, Joel Matip og Joe Gomez innan sinna herbúða.
Athugasemdir
banner
banner