Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 05. október 2022 09:43
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu gullfallega aukaspyrnumarkið sem Trent skoraði
Mynd: EPA
Liverpool vann Rangers frá Glasgow 2-0 í Meistaradeildinni í gær. Liverpool er með sex stig eftir þrjá leiki en liðið hafði yfirburði í leiknum í gær og sigurinn hefði getað orðið talsvert stærri.

Fyrra mark Liverpool í gær var sérstaklega glæsilegt.

„Trent Alexander-Arnold, sem hefur verið gagnrýndur harðlega síðustu vikur, skoraði stórkostlegt mark úr aukaspyrnu á 7. mínútu leiksins. Hann lyfti boltanum hárfínt yfir vegginn og efst í vinstra hornið," skrifaði Brynjar Ingi Erluson í umfjöllun sinni í gær.

Hægt er að sjá öll mörkin úr Meistaradeildinni á Vísi með því að smella hér en hér eru mörkin frá Anfield:


Athugasemdir
banner
banner
banner