Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 05. desember 2018 22:36
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Man Utd og Arsenal: Torreira maður leiksins
Mynd: Getty Images
Manchester United gerði 2-2 jafntefli við Arsenal í stórleik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.

Liðin mættust á Old Trafford í miklum baráttuleik þar sem Arsenal komst yfir í tvígang en heimamenn voru snöggir að jafna í bæði skiptin.

Sky Sports gaf leikmönnum einkunn og voru miðjumennirnir Lucas Torreira og Matteo Guendouzi bestu menn vallarins ásamt Alexandre Lacazette, sem kom inn af bekknum og skoraði.

Allir leikmenn Man Utd fá annað hvort 5 eða 6 í einkunn fyrir sinn þátt í leiknum en aðeins tveir leikmenn Arsenal fá 5 í einkunn, Bernd Leno í markinu og Henrikh Mkhitaryan sem kom inn af bekknum.

Arsenal er ásamt Chelsea í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar, átta stigum fyrir ofan Man Utd, Bournemouth og Everton.

Man Utd: De Gea (5), Dalot (5), Bailly (6), Rojo (5), Smalling (6), Darmian (5), Herrera (6), Matic (6), Martial (6), Lingard (6), Rashford (6)
Varamenn: Lukaku (5), Fellaini (5), Pogba (5)

Arsenal: Leno (5), Bellerin (6), Sokratis (6), Mustafi (6), Holding, Kolasinac (6), Guendouzi (7), Torreira (7), Ramsey (6), Iwobi, Aubameyang (6)
Varamenn: Lichtsteiner (6), Mkhitaryan (5), Lacazette (7)
Athugasemdir
banner
banner
banner