Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 06. febrúar 2020 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Reus missir af báðum leikjunum gegn PSG
Mynd: Getty Images
Dortmund verður að öllum líkindum án Marco Reus, fyrirliða liðsins, í báðum leikjunum gegn PSG í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Dortmund hefur greint frá því að Reus verði frá í mánuð. Hann fór af velli seint í tapi Dortmund gegn Werder Bremen á þriðjudagskvöldið.

Hinn þrítugi Reus varð fyrir vöðvameiðslum, Dortmund býst við því að hann snúi til baka til æfinga eftir fjórar vikur.

Dortmund mætir PSG þann 16. febrúar í fyrri leik liðanna og þann 11. mars í seinni leiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner