Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 07. mars 2021 07:30
Victor Pálsson
Elfar Árni sneri aftur hjá KA í gær
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Elfar Árni Aðalsteinsson sneri aftur á völlinn fyrir lið KA í gær sem mætti Aftureldingu Lengjubikarnum og vann 7-1 sigur.

Það eru virkilega góðar fréttir fyrir KA en Elfar er einn mikilvægasti leikmaður liðsins þegar hann er heill heilsu.

Framherjinn hefur ekki spilað í rúmlega ár vegna meiðsla en hann sleit krossband á undirbúningstímabilinu í fyrra.

Þessi þrítugi leikmaður kom inná í leiknum í gær og eru það gleðifréttir fyrir KA en stutt er í að Íslandsmótið hefjist.

Elfar skrifaði nýlega undir nýjan samning við félagið og er nú bundinn til ársins 2022.
Athugasemdir
banner
banner
banner