Ísland tapaði 6-0 fyrir Sviss í fyrsta leik Þjóðadeildarinnar og eðlilega eru einkunnir íslenska liðsins býsna lágar.
Hannes Þór Halldórsson 2
Alls ekki sannfærandi í leiknum í dag.
Birkir Már Sævarsson 3
Átti í miklu basli eins og aðrir í varnarleiknum.
Sverrir Ingi Ingason 2
Leit hrikalega út.
Ragnar Sigurðsson 3
Slakasti leikur Ragga fyrir landsliðið.
Ari Freyr Skúlason 2
Átti í miklu basli eins og aðrir í varnarleiknum.
Rúrik Gíslason 2
Kom lítið sem ekkert út úr Rúrik í dag.
Guðlaugur Victor Pálsson 2
Alls ekki óskaleikurinn til að fá tækifærið í.
Gylfi Þór Sigurðsson 4
Okkar hæfileikaríkasti leikmaður náði sér ekki á strik en var þó skástur ásamt Jóni Daða.
Birkir Bjarnason 2
Einn slakasti leikur Birkis fyrir landsliðið.
Björn Bergmann Sigurðarson 3
Komst ekki í gang.
Jón Daði Böðvarsson 4
Virkaði mun meiri vilji hjá honum en flestum okkar leikmönnum.
Varamenn:
Theodór Elmar Bjarnason 3
Viðar Örn Kjartansson 3
Athugasemdir