Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. mars 2024 18:37
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Sauðkrækingar unnu á Selfossi
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Selfoss 0 - 2 Tindastóll
0-1 Aldís María Jóhannsdóttir ('41 )
0-2 Birgitta Rún Finnbogadóttir ('47 )

Selfoss og Tindastóll áttust við í síðasta leik dagsins í A-deild Lengjubikars kvenna og var staðan markalaus fram að 41. mínútu.

Það var Aldís María Jóhannsdóttir sem kom gestunum frá Sauðárkróki yfir með fyrsta markinu á Selfossi.

Birgitta Rún Finnbogadóttir tvöfaldaði forystu Tindastóls í upphafi síðari hálfleik og voru ekki fleiri mörk sem litu dagsins ljós.

Lokatölur urðu því 0-2 fyrir Tindastól sem er með fjögur stig eftir fjórar umferðir.

Selfoss er án stiga og með markatöluna 0-13.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner