Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 09. mars 2024 11:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stuðningsmenn Nice brjálaðir út í Todibo - „Farðu ef þú ert ekki sáttur"
Mynd: EPA

Stuðningsmenn Nice voru brjálaðir út í Jean Clair-Todibo miðvörð liðsins eftir 2-1 tap gegn Montpellier í frönsku deildinni í gær.


Todibo skoraði fyrsta mark leiksins en því miður fyrir hann og Nice var það sjálfsmark.

Todibo hefur verið orðaður við Manchester United frá því í sumar en hann lenti upp á kant við stuðningsmenn Nice eftir leikinn í gær.

Nice er í eigu Sir Jim Ratcliffe sem hefur fjárfest í Man Utd en stuðningsmenn Nice voru brjálaðir út í leikmanninn eftir leikinn og kölluðu til hans: „Farðu ef þú ert ekki sáttur."

Það fór verulega í taugarnar á honum og reifst hann við stuðningsmennina en samherjar hans reyndu hvað þeir gátu að koma honum frá.

„Ég sætti mig ekki við að vera vanvirtur svona," sagði Todibo eftir leikinn.


Athugasemdir
banner
banner
banner