Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 09. apríl 2021 14:00
Magnús Már Einarsson
Klopp útskýrði skiptinguna fyrir Keita
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segist hafa fundað með Naby Keita í gær til að útskýra fyrir miðjumanninum af hverju hann var tekinn af velli í 3-1 tapinu gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í vikunni.

Klopp ákvað að gera breytingu rétt fyrir hálfleik og taka Keita af velli en hann hafði ekki átt góðan dag.

„Naby hefur spilað frábæra leiki fyrir okkur og skorað mikilvæg mörk. Það er sannleikurinn," sagði Klopp.

„Skiptingin sem við tókum snemma í síðasta leik var ákvörðun sem ég tók á því augnabliki. Við urðum að laga leik okkar."

„Í gær ræddum við saman. Ég útskýrði ákvörðunina og hann samþykkti hana."

Athugasemdir
banner
banner