Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 10. janúar 2022 11:34
Elvar Geir Magnússon
Chiesa á hækjum og tímabilinu er lokið
Mynd: Getty Images
Federico Chiesa, leikmaður Juventus, fór í skoðun og myndatöku vegna hnémeiðsla í morgun og mætti hann á hækjum.

Þessi 24 ára leikmaður meiddist í svakalegum sigurleik Juventus gegn Roma í gær.

Tímabilinu er lokið hjá Chiesa sem þarf að fara í aðgerð vegna liðbandameiðsla.

Þá missir hann af landsleikjum Ítalíu í mars en hann er lykilmaður, bæði hjá Juve og landsliðinu.

Chiesa hefur skroað tvö mörk og átt þrjár stoðsendingar í fjórtán leikjum í ítölsku A-deildinni. Hann var nýkominn aftur í slaginn eftir vöðvameiðsli.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner