Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 10. febrúar 2020 10:30
Magnús Már Einarsson
Mourinho fylgdist með upphitun Leipzig
Mynd: Getty Images
Leikmenn Tottenham eru þessa dagana í stuttu vetrarfríi en Jose Mourinho, stjóri liðsins, tók ekkert frí um helgina.

Mourinho skellti sér þess í stað til Þýskalands að horfa á leik Bayern Munchen og RB Leipzig en Tottenham mætir síðarnefnda liðinu í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næstu viku.

Leikurinn endaði með markalausu jafntefli en Mourinho vill frekar fara sjálfur á völlinn heldur en að treysta á njósnara sína eða skoða sjónvarpsupptökur.

„Það er mjög mikilvægt. Ég sé smávægileg atriði. Jafnvel upphitunina. Ég get séð það sem ég get ekki séð í sjónvarpinu. Að sjá upphitun og hvað leikmennirnir gera þar," sagði Mourinho.

„Sumt af því sem menn gera í leikjum er falið. Það er önnur ákefð þá. Þetta er öðruvísi upplifun og ég mátti ekki missa af þessu."
Athugasemdir
banner
banner
banner