Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 10. apríl 2021 20:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Keflavík kynnir nýja búninga fyrir Pepsi Max-deildina
Kvennalið Keflavíkur vann Lengjudeildina, rétt eins og karlaliðið.
Kvennalið Keflavíkur vann Lengjudeildina, rétt eins og karlaliðið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Karla- og kvennalið Keflavíkur munu leika í Pepsi Max-deildinni í sumar en þau komust bæði upp úr Lengjudeildinni síðasta sumar. Bæði lið voru í efsta sæti í Lengjudeildinni þegar mótið var blásið af í fyrra.

Keflavík hefur gefið út nýja keppnisbúninga sem liðin munu leika í þegar fótboltinn byrjar aftur að rúlla, vonandi á næstu dögum.

Keflavík leikur í búningum frá Nike en félagið gaf út myndband í tengslum við búningakynninguna sem má sjá neðst í fréttinni.

„Við kynnum með stolti nýjan og glæsilegan keppnisbúning Keflavíkur!"

Hér að neðan má sjá það hvernig búningar félagsins fyrir tímabilið eru.



Athugasemdir
banner
banner
banner