Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 10. ágúst 2018 14:30
Magnús Már Einarsson
Í sex leikja bann fyrir kynþáttafordóma í garð Ba
Demba Ba.
Demba Ba.
Mynd: Getty Images
Zhang Li, miðjumaður Changchun Yatai í Kína, hefur verið úrskurðaður í sex leikja bann.

Li er dæmdur í bannið fyrir að vera með kynþáttafórdóma í garð Demba Ba framherja Shanghai Shenhua.

Li og Ba lentu í rifrildi eftir 1-1 jafntefli um síðustu helgi. Li var með kynþáttafordóma og hefur nú verið dæmdur í bann.

Hinn 33 ára gamli Ba er fyrrum leikmaður Chelsea og Newcastle en hann hefur spilað í Kína með stuttum hléum síðan árið 2015.
Athugasemdir
banner
banner