Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 10. ágúst 2019 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Eitthvað sem ég og fjölskylda mín erum mjög stolt af"
Mynd: Getty Images
„Þetta var það sem mig dreymdi síðustu nótt," sagði Herra Sheffield United, fyrirliðinn Billy Sharp, eftir 1-1 jafntefli gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Sharp skoraði jöfnunarmarkið fyrir nýliða Sheffield United þegar lítið var eftir af leiknum.

„Það er frábært að fá þetta stig. Við áttum skilið að fá eitthvað út úr leiknum. Ég var heppinn að það var ég sem skoraði þetta mark," sagði Sharp.

„Við horfðum á Norwich í gærkvöldi. Þeir spiluðu mjög vel en töpuðu gegn Liverpool. Engin vanvirðing gagnvart Bournemouth, en okkur fannst við geta komið hingað og fengið eitthvað út úr leiknum."

„Þetta er eitthvað sem ég og fjölskylda mín erum stolt af."
Athugasemdir
banner
banner