Jack Grealish, leikmaður Aston Villa á Englandi, bætti heldur óeftirsóknarvert met er lið hans tapaði gegn Tottenham Hotspur í dag í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Grealish er uppalinn hjá Villa en hann lék með liðinu í úrvalsdeildinni síðast árið 2016 er liðið féll niður í ensku B-deildina.
Hann tapaði þá leiktíðina átján deildarleikjum í röð og í dag kom sá nítjándi.
Þar með á hann metið eftir flesta tapaða leiki í röð í úrvalsdeildinni, met sem hann mun seint fagna.
19 - Jack Grealish has now lost 19 Premier League games in a row - the longest run of any player in the competition's history. Suffering. #TOTAVL pic.twitter.com/qqfJDpn8mV
— OptaJoe (@OptaJoe) August 10, 2019
Athugasemdir