Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 11. janúar 2021 14:30
Magnús Már Einarsson
Genoa vill fá Sokratis frá Arsenal
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Genoa hefur lýst yfir áhuga á að fá varnarmanninn Sokratis Papastathopoulos í sínar raðir frá Arsenal.

Hinn 32 ára gamli Sokratis hefur ekkert spilað í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

„Sokratis er möguleiki, hann er mjög góður leikmaður," sagði Alessandro Zarbano framkvæmdastjóri Genoa.

„Við vitum ekki ennþá hvort hann komi til okkar á næstu dögum."

Samningur Sokratis hjá Arsenal rennur út í sumar en hann kom til félagsins frá Dortmund árið 2018.
Athugasemdir
banner
banner