ÍH og Mídas eru komin áfram í Mjólkurbikarnum eftir sigra gegn Birninum og Ísbirninum.
Eiríkur Viljar Hallgrímsson Kúld sá um Björninn með því að skora öll þrjú mörk leiksins og tryggja ÍH áfram í næstu umferð.
Sigurður Ólafur Kjartansson gerði þá eina mark Mídasar gegn Ísbirninum snemma leiks.
ÍH á næst heimaleik við sigurvegarann úr viðureign Árborgar og Augnabliks á meðan Mídas heimsækir Elliða.
KÁ sló þá Kríu úr leik og mætir Herði Í. eða Berserkjum í næstu umferð.
ÍH 3 - 0 Björninn
1-0 Eiríkur Viljar Kúld ('26)
2-0 Eiríkur Viljar Kúld ('65)
3-0 Eiríkur Viljar Kúld ('68)
Mídas 1 - 0 Ísbjörninn
1-0 Sigurður Ólafur Kjartansson ('4)
Rautt spjald: Ísbjörninn ('89)
Kría 1 - 2 KÁ
0-1 Oliver Helgi Gíslason ('3)
0-2 Sindri Hrafn Jónsson ('31)
1-2 Jóhannes Hilmarsson ('57)
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir