Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 12. maí 2019 20:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pogba svaraði áhorfanda sem var langt frá því að vera hress
Mynd: Getty Images
Paul Pogba endaði tímabilið ekki vel eins og flestir, ef ekki allir, aðrir leikmenn Manchester United.

Pogba var ekki góður í dag þegar United tapaði 2-0 gegn Cardiff á heimavelli í lokaumferðinni.

Eftir leikinn gengu leikmenn United hring til þess að þakka stuðningsmönnum fyrir stuðninginn. Pogba fékk svoleiðis að heyra það frá einum stuðningsmanni.

„Þú ert ömurlegur, farðu til fjandans," var öskrað í áttina að Pogba sem svaraði áhorfandanum á léttu nótunum.

Pogba, sem er miðjumaður er bæði markahæstur og stoðsendingahæstur hjá United á tímabilinu.

Hvað finnst stuðningsmönnum Manchester United um þetta?




Athugasemdir
banner
banner
banner