Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 12. júní 2021 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mount rifjar upp þegar hann hitti Fabregas á HM
Mynd: EPA
Mason Mount, leikmaður Chelsea, er í leikmannahópi Englands sem er núna á EM.

Mount rifjaði upp í viðtali þegar hann hitti Cesc Fabregas fyrrum miðjumann Chelsea á HM í Rússlandi 2018. Mount var þá ásamt unstirnunum Ryan Sessegnon og Phil Foden nýbúinn í viðtali hjá Alan Shearer og Gary Lineker hjá BBC.

„Þegar ég skoða myndir núna frá HM í Rússlandi sé ég hvað við vorum ungir þarna" Sagði Mount

„Ég man að við vorum að labba um settið hjá BBC eftir smá viðtal hjá Alan Shearer og Gary Lineker og við rekumst á Fabregas og spjöllum aðeins við hann. Hann mundi eftir mér á æfingum hjá Chelsea og, já, við vitum hversu mikil goðsögn hann er og hvað hann hefur gert fyrir íþróttina"

„Að spjalla við Fabregas, Shearer og Lineker var mjög einstakt, við lærðum hitt og þetta af þeim. Þetta var einstök ferð og við nutum hennar mjög" Sagði Mount
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner