Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 12. júlí 2018 17:30
Magnús Már Einarsson
Crystal Palace vill fá Antonio
Michail Antonio hefur verið duglegur við markaskorun undanfarin ár.
Michail Antonio hefur verið duglegur við markaskorun undanfarin ár.
Mynd: Getty Images
Crystal Palace vill fá Michail Antonio kantmann West Ham í sínar raðir fyrir tímabilið.

Sky Sports segir frá því í dag að Palace sé að íhuga að leggja fram 15 milljóna punda tilboð í Antonio.

Antonio hefur heillað Manuel Pellegrini, nýráðinn stjóra West Ham, í æfingabúðum félagsins í Sviss.

Hins vegar þarf West Ham að selja leikmenn eftir mikla eyðslu á markaðinum í sumar.

West Ham er að landa Felipe Anderson miðjumanni Lazio á 35 milljónir punda og þá hefur félagið eytt yfir 90 milljónum punda samanlagt í leikmenn í sumar.
Athugasemdir
banner