Stuðningsmaður Hauka vann 18.5 milljónir þegar hann hitti á 13 rétta á enska getraunaseðlinum.
Þetta er í annað sinn sem tipparinn fær 13 rétta á enska seðlinum á tveimur vikum.
Ljóst var fyrir leik Tottenhan gegn Crystal Palace að hann var með 12 rétta, mikil spenna var á lokamínútum þess leiks og engu munaði að Crystal Palace næði að jafna í uppbótartíma en sem betur fer fyrir okkar mann endaði leikurinn með naumum sigri Tottenham.
Hafnfirðingurinn tippaði á opinn seðil með 10 leiki tvítryggða og 3 leiki með einu merki.
Athugasemdir