Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 13. janúar 2018 20:03
Ingólfur Stefánsson
Þýskaland: Keita skoraði í sigri á Schalke
Mynd: Getty Images
RB Leipzig 3 - 1 Schalke 04
0-0 Jean-Kevin Augustin ('37 , Misnotað víti)
1-0 Naby Keita ('41 )
1-1 Naldo ('55 )
2-1 Timo Werner ('69 )
3-1 Bruma ('71 )

RB Leipzig og Schalke mættust í síðasta leik dagsins í þýsku úrvalsdeildinn.

RB Leipzig voru sterkara liðið í fyrri hálfleik og á 37. mínútu fengu þeir vítaspyrnu. Framherjinn Jean-Kevin Augustin steig á punktinn en náði ekki að skora.

Miðjumaðurinn Naby Keita náði þó að skora fyrir Leipzig fjórum mínútum síðar og staðan 1-0 Leipzig í vil í hálfleik.

Keita braut klaufalega af sér þegar 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Upp úr aukaspyrnunni skoraði Naldo og jafnaði metinn fyrir Schalke.

Á 63. mínútu leiksins kom Timo Werner inn fyrir Augustin. Hann kom Leipzig í 2-1 á 69. mínútu leiksins og lagði upp mark fyrir Bruma tveimur mínútum síðar sem gulltryggði sigurinn.

Með sigrinum fara RB Leipzig upp fyrir Schalke í annað sæti deildarinnar með 31 stig. Schalke eru nú í því þriðja með 30 stig en geta dottið niður í 5. sætið niður fyrir Borussia Dortmund og Borussia Moenchengladbach sem eiga leiki til góða.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 30 25 5 0 75 20 +55 80
2 Bayern 30 21 3 6 87 37 +50 66
3 Stuttgart 30 20 3 7 68 36 +32 63
4 RB Leipzig 30 18 5 7 69 34 +35 59
5 Dortmund 30 16 9 5 58 35 +23 57
6 Eintracht Frankfurt 30 11 12 7 46 40 +6 45
7 Freiburg 30 11 7 12 42 53 -11 40
8 Augsburg 30 10 9 11 48 49 -1 39
9 Hoffenheim 31 11 6 14 55 63 -8 39
10 Heidenheim 30 8 10 12 43 52 -9 34
11 Werder 30 9 7 14 38 50 -12 34
12 Gladbach 30 7 10 13 53 60 -7 31
13 Wolfsburg 30 8 7 15 35 50 -15 31
14 Bochum 31 6 12 13 37 62 -25 30
15 Union Berlin 30 8 5 17 26 50 -24 29
16 Mainz 30 5 12 13 31 48 -17 27
17 Köln 30 4 10 16 23 53 -30 22
18 Darmstadt 30 3 8 19 30 72 -42 17
Athugasemdir
banner
banner
banner