Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 13. apríl 2021 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Flick: Ég kann að tapa og vil óska þeim til hamingju
Mynd: Getty Images
„Venjulega, þá sýnir liðið mitt mikil gæði á síðasta þriðjungi vallarins en í dag þá vantaði okkur síðasta höggið," sagði Hansi Flick, aðalþjálfari Bayern, við Sky Germany eftir 0-1 sigur gegn PSG.

Sigurinn dugði ekki því PSG skoraði þrjú mörk á Allianz Arena fyrir tæpri viku síðan og fer áfram á útivallarmörkum skoruðum.

„Við verðum að sætta okkur við það þó við hefðum viljað aðra niðurstöðu."

„Eftir úrslitin í fyrri leiknum, og öll færin sem við fengum og þeir komust í þá er augljóst að við hefðum farið áfram ef þeir hefðu ekki skorað þriðja markið í fyrri leiknum."

„Þú sérð hversu hættulegir þeir eru þegar þeir sækja. Ég verð að hrósa mínu liði þrátt fyrri að París hafi komist áfram. Ég kann að tapa og vil óska þeim til hamingju,"
sagði Flick að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner