Finnland 0 - 0 Ísland
Íslenska kvennalandsliðið gerði markalaust jafntefli við Finnland í fyrri vináttulandsleik þjóðanna. Leikurinn í dag fór fram í Turku og tefldi Jón Þór Hauksson fram reyndu byrjunarliði.
Leikurinn er hluti af undirbúningi liðanna fyrir undankeppni EM en þau mætast aftur í Finnlandi á mánudaginn.
Finnska liðið var ívið sterkara í leiknum í dag en Ísland komst næst því að skora þegar Elín Metta Jensen átti skot í þverslá snemma leiks.
Annars var leikurinn mjög bragðdaufur. Vonandi verður meira stuð á mánudaginn.
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, leikmaður Breiðabliks, kom inn sem varamaður í seinni hálfleik í sínum fyrsta A-landsleik. Áslaug er fædd 2001 og kemur frá Hetti á Egilsstöðum.

Er að reyna að vera jákvæð, rýna til gagns en sóknarleikur Íslands og uppspil.... Væri til í spjall um taktík. Aðferðin sem þær nota virkar ekki. Vonandi verður breyting á í seinni hálfleik. Áfram Ísland. #fotboltinet
— Vanda Sigurgeirsdóttir (@vandasig) June 13, 2019
Lið Íslands:
Sandra Sigurðardóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Anna Björk Kristjánsdóttir
(81 Ásta Eir Árnadóttir)
Hallbera Guðný Gísladóttir
(59 Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir)
Agla María Albertsdóttir
Dagný Brynjarsdóttir
(81 Margrét Lára Viðarsdóttir)
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
(81 Alexandra Jóhannsdóttir)
Sara Björk Gunnarsdóttir
Fanndís Friðriksdóttir
(59 Hlín Eiríksdóttir)
Elín Metta Jensen
Athugasemdir