Erik Hamren hefur opinberað byrjunarlið Íslands fyrir Þjóðadeildarleikinn gegn Sviss sem hefst 18:45 á Laugardalsvelli.
Sigur gæti reynst dýrmætur í baráttunni um að vera í efsta styrkleikaflokki í drættinum fyrir undankeppni EM. Ef Ísland vinnur ekki er fall úr A-deild Þjóðadeildarinnar staðfest.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu

Ísland teflir fram sama byrjunarliði og Fótbolti.net spáði.
Byrjunarliðið er það sama og gegn Frakklandi fyrir utan tvær breytingar. Hörður Björgvin Magnússon kemur inn í vinstri bakvörðinn fyrir Birki Má Sævarsson sem er að glíma við meiðsli. Hannes Þór Halldórsson snýr aftur í rammann.
Hannes; Hólmar, Kári, Raggi, Hörður; Birkir, Rúnar, Gylfi (f); Jói Berg, Arnór; Alfreð.
👇 Our starting lineup for the game against Switzerland!#fyririsland pic.twitter.com/bQghxsqZ25
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) October 15, 2018
Athugasemdir