Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 15. desember 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Man City tekur á móti Everton í hádeginu
Litla teymið.
Litla teymið.
Mynd: Getty Images
Englandsmeistarar Manchester City hefja þessa helgi í ensku úrvalsdeildinni með hádegisleik gegn Gylfa Þóri Sigurðssyni og félögum í Everton.

Man City er án margra leikmanna vegna meiðsla og eru þrír lykilmenn tæpir fyrir leikinn. Ástandið er talsvert betra hjá Everton þar sem Idrissa Gana Gueye er einn á meiðslalistanum.

David Silva og Benjamin Mendy eru meðal meiddra leikmanna City en Sergio Agüero, Kevin De Bruyne og John Stones eru tæpir. Það er þó talið líklegt að Agüero og De Bruyne geti byrjað leikinn í dag.

City kemst aftur á topp úrvalsdeildarinnar með sigri en Everton getur komist yfir Manchester United og upp í sjötta sæti með sigri.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley eiga útileik gegn Tottenham á meðan Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff heimsækja Watford.

Crystal Palace á leik við Leicester og Huddersfield mætir Newcastle í fallbaráttunni á meðan Wolves tekur á móti Bournemouth í spennandi viðureign.

Fulham tekur svo á móti West Ham í síðasta leik dagsins þar sem hart verður barist enda er um Lundúnaslag að ræða.

Leikir dagsins:
12:30 Manchester City - Everton (Stöð 2 Sport)
15:00 Crystal Palace - Leicester
15:00 Huddersfield - Newcastle
15:00 Tottenham - Burnley
15:00 Watford - Cardiff
15:00 Wolves - Bournemouth
17:30 Fulham - West Ham (Stöð 2 Sport)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner