Leikir Íslands á HM í sumar verða sýndir á risaskjá í Hljómskálagarðinum en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi í Hljómskálanum nú rétt í þessu.
Líkt og á EM karla 2016 og EM kvenna 2017 verður einnig risaskjár á Ingólfstorgi. Þar verða allir leikirnir á HM sýndir í beinni útsendingu. Leikir Íslands verða síðan einnig sýndir í Hljómskólagarðinum.

„Við byggjum á reynslu af EM torgunum undanfarin ár og knattspyrnuveislan heldur áfram," sagði Guðni Bergsson formaður KSÍ á fréttamannafundinm í dag.
„Það eru forréttidi að taka þátt í þessu og finna þessa samkennd þegar landslið Íslands keppa á stórmótum."
„Bakhjarlar KSÍ og Reykjavíkurborg koma að þessu með einstökum stórhug og þetta verður veisla hjá okkur í sumar. Við viljum að okkur gangi vel innan vallar og við ætlum að vera flottust utan vallar eins og við höfum verið," sagði Guðni.
Athugasemdir