Geir Þorsteinsson, fyrrum formaður KSÍ, gerir HM í Rússlandi upp í færslu á Twitter síðu sinni.
„Ísland með en .. vonbrigði," segir Geir meðal annars um þátttöku Íslands.
Ísland gerði jafntefli gegn Argentínu í fyrsta leik á HM en tapaði síðan gegn Nígeríu í öðrum leik. Í þriðja leik tapaði Ísland naumlega fyrir Króatíu sem fór í úrslitaleikinn í gær.
Geir hrósar Rússum fyrir gott mót í færslu sinni og þá er hann ánægður með dómgæsluna og VAR.
Stutt HM 2018 uppgjör
— Geir Thorsteinsson (@FootballGeir) July 15, 2018
Ísland með
en .. vonbrigði
Skemmtilegt mót
Margir frábærir leikir
Frakkland vann: Best allra
Dómgæslan góð með VAR
Rússland á heiður skilinn fyrir
frammistöðu og framkvæmd alla
Athugasemdir