Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. október 2021 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Notaði úrvalsdeildarleik sem nokkurs konar upphitun
Cole Palmer.
Cole Palmer.
Mynd: EPA
Það var mikið að gera hjá Cole Palmer, leikmanni Manchester City, á þessum laugardegi.

Þessi efnilegi fótboltamaður byrjaði daginn á því að vera á meðal varamanna Manchester City gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni. Hann kom inn á undir lokin og spilaði sinn annan úrvalsdeildarleik þegar City vann fínan 2-0 sigur.

Það má segja að hann hafi notað þennan leik gegn Burnley sem upphitun því í kvöld var hann mættur í leik með U23 liði Man City gegn Leicester.

Það er ljóst að það er mikið spunnið í þennan leikmann. Hann skoraði þrennu fyrir U23 liðið í 5-0 sigri.

Palmer er 19 ára gamall miðjumaður sem Pep Guardiola, stjóri Man City, er sagður mjög hrifinn af.


Athugasemdir
banner