Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 17. mars 2024 22:55
Brynjar Ingi Erluson
Mbappe skoraði þrennu í stórsigri PSG
Kylian Mbappe er kominn með 24 mörk í deildinni
Kylian Mbappe er kominn með 24 mörk í deildinni
Mynd: EPA
Franski sóknarmaðurinn Kylian Mbappe var í stuði í 6-2 stórsigri Paris Saint-Germain á Montpellier í frönsku deildinni í kvöld en hann skoraði þrjú og lagði upp eitt fyrir gestina.

Mbappe, sem mun að öllum líkindum semja við Real Madrid í sumar, lagði upp fyrsta markið fyrir Vitina áður en hann gerði annað markið eftir sendingu Randal Kolo Muani.

Montpellier kom til baka og jafnaði metin áður en hálfleikurinn var úti, en í þeim síðari gekk PSG frá heimamönnum með fjórum mörkum.

Mbappe og Lee Kang-In skoruðu tvö á þremur mínútum áður en Mbappe fullkomnaði þrennu sína hálftíma fyrir leikslok.

Nuno Mendes skoraði sjötta og síðasta mark leiksins eftir stoðsendingu Vitinha.

Mbappe er lang markahæstur í deildinni með 24 mörk en Jonathan David, samherji Hákonar Arnars Haraldssonar, kemur næstur með 15 mörk.

PSG er á toppnum með 59 stig, tólf stigum meira en Brest sem er í öðru sæti.
Athugasemdir
banner
banner