City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   þri 17. mars 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Neymar leiður að vera ekki valinn - „Draumurinn lifir áfram“
Mynd: EPA
Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar er vonsvikinn með að hafa ekki verið valinn í landsliðið fyrir æfingaleikina gegn Frakklandi og Króatíu í þessum mánuði, en hann hefur enn trú á því að komast í lokahópinn fyrir HM í sumar.

Carlo Ancelotti tilkynnti landsliðshópinn í kvöld og var nafn Neymar hvergi að sjá.

Þjálfarinn útskýrði fjarveru Neymar en hann sagði hann ekki vera í nægilega góðu formi til þess að eiga skilið að vera í landsliðinu.

Neymar, sem hefur komið að fjórum mörkum í fjórum leikjum með Santos á þessari leiktíð, er leiður en segir drauminn um að komast á HM lifa góðu lífi.

„Ég er í uppnámi og bara mjög leiður yfir því að hafa ekki verið kallaður inn í landsliðið, en einbeitingin er áfram sú sama. Við munum ná markmiðum okkar.“

„Draumurinn lifir og það er enn möguleiki að komast í lokahópinn fyrir HM. Það er bara þannig. Við erum saman í þessu,“
sagði Neymar.
Athugasemdir
banner
banner